Gaman gaman :)
Hér kemur mjög merkileg frétt um hross

Gobbiddi gobb :)
Gobbiddi gobb
Aldur
Lífaldur hests fer eftir kyni (tegund), umhverfi og erfðum. Í dag lifa hestar gjarnan til 25 til 30 ára aldurs en hestar í villtum stóðum lifa gjarnan styttra enda kljást þeir þar við náttúrulegt val. Elsti hesturinn er talinn hafa verið „Old Billy“ sem lifði til 62 ára aldurs.[1]
Stærð
Stærðarmunur á hrossakynjum
Hrossakynjum er skipt í tvo flokka eftir stærð; smáhesta og hesta. Hæðin er mæld á herðakambi og smáhestar kallast þeir hestar sem ná ekki 147 cm hæð. Skiptingin er þó ekki algild og er t.d. umdeilt hvort íslenski hesturinn sé hestur eða smáhestur. Þannig þarf einnig að fylgja byggingu og getu hesta til að ákvarða í hvorn flokkinn þeir falla í.
Minnsta viðurkennda hrossategundin í heiminum er Falabella en stærsta er Skírir (e. Shire). Stærsti einstaklingurinn var Sampson, síðar Mammoth, af Skíriskyni, sem náði 2.20 m hæð. Minnsti einstaklingurinn var Thumbelina (íslenska: Þumalína) sem þjáist af vaxtarstöðnun. Hún var 43 cm há á herðakamb.[2]

Guðrún Hildur Gunnarsdóttir
Ráðunautur






